Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 15:00
Kári Snorrason
Iraola í viðræðum við AC Milan
Gerði góða hluti með Bournemouth.
Gerði góða hluti með Bournemouth.
Mynd: EPA
Ítalska stórliðið AC Milan fundaði í gær með fulltrúum spænska stjórans Andoni Iraola samkvæmt Sky á Ítalíu, en nýr fundur er sagður hafa verið skipulagður eftir fyrstu viðræður við umboðsmenn hans.

Fundurinn fór fram í London og er liður í leit AC Milan að næsta stjóra liðsins.

Iraola hefur undanfarin misseri stýrt enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth með stórkostlegum árangri. Liðið mun spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Þá kemur fram að AC Milan skoði einnig breytingar í stjórnkerfi sínu, sem sagt þeim aðilum sem munu stjórna fótboltadeild félagsins á bak við tjöldin.

Slapp
banner