Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 19:09
Kári Snorrason
Sara Björk yfirgefur Sádi-Arabíu - Orðuð við Hauka
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands, hefur ákveðið að yfirgefa Al Qadsiah í Sádi-Arabíu eftir að hafa verið hjá félaginu í tvö tímabil.

Hún greinir frá þessu í færslu á Instagram. „Tveggja ára dvöl í Sádí-Arabíu er nú lokið og þvílík mögnuð reynsla sem það var,” skrifar Sara.

Sara hefur átt frábæran feril þar sem hún hefur leikið erlendis með Rosengård í Svíþjóð, Lyon í Frakklandi og Juventus á Ítalíu. Hún vann meðal annars Meistaradeildina tvisvar með Lyon.

Sara hefur verið sterklega orðuð við heimkomu og mest við uppeldisfélag sitt Hauka. Þær sögusagnir verða ekkert lágværari en Haukar hafa byrjað tímabilið mjög vel og eru á toppi Lengjudeildar kvenna með fullt hús stiga.



Slapp
banner
banner