Gat ekki svarað spurningu blaðamanns - „Ég hreinlega veit það ekki“

Rayan hefur komið sterkur inn hjá Brössum

Mynd: EPA

Brasilíski vængmaðurinn Rayan þarf að fara betur yfir liðið hjá Japan fyrir leik þjóðanna í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins, en hann gat ekki svarað einfaldri spurningu blaðamanns fyrir leikinn.
Rayan, 19 ára sóknarmaður Bournemouth og brasilíska landsliðsins, fór á kostum á síðustu leiktíð og vann sér inn farseðilinn með Brasilíu á heimsmeistaramótið.
Hann hefur nýtt tækifærið vel á HM en virðist þó ekki vita mikið um næsta mótherja Brasilíu.
Japanskur blaðamaður spurði Rayan hvern hann teldi besta leikmann japanska landsliðsins en Brasilíumaðurinn gat ómögulega svarað því.
„Við vitum að Japan er mjög sterkt lið og við ætlum að gera okkar besta til að vinna þá,“ sagði Rayan áður en næsta spurning var lögð fyrir hann.
Hvern telur þú besta leikmann Japans og hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar liðsins?
„Ég hef ekki hugmynd um hver er besti leikmaður þeirra. Ég þarf að horfa á myndbönd af þeim fyrst. Við munum undirbúa okkur af krafti í vikunni og reyna að ná í sigurinn,“ sagði Rayan.
Nú hefst heimavinnan hjá Rayan, sem byrjaði inn á og lagði upp mark í 3-0 sigri Brasilíu á Skotlandi í lokaleik riðlakeppninnar.