Stefán skoraði tvö í 23 marka sigri

Stefán Ingi fer undirbúningstímabilið vel af stað

Mynd: GAE

Stefán Ingi Sigurðarson fer vel af stað með hollenska liðinu Go Ahead Eagles á undirbúningstímabilinu en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 23-0 slátrun á neðri deildarliðinu Terwolde í dag.
Blikinn kom til Eagles frá Sandefjord um áramótin og skoraði þrjú mörk í deildinni á síðustu leiktíð.
Hann og félagar hans eru byrjaðir að undirbúa nýtt tímabil og fóru af stað með miklum látum.
Stefán lagði upp þrettánda mark liðsins og skoraði síðan tvö mörk í röð undir lok leiksins.
Alfons Sampsted er einnig á mála hjá Eagles. Hann byrjaði leikinn og lagði upp fjórða markið með laglegri fyrirgjöf á Ofosu Boakye, sem skoraði þrennu á tæpum þremur mínútum.
Næsti leikur Eagles er gegn Oss eftir viku.

???? Eerste oefenduel gewonnen pic.twitter.com/6lGUGE4jSf
— Go Ahead Eagles ???? (@GAEagles) June 27, 2026