Fotbolti.net
27.07.19 - 16:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ásta Eir: Búin að bíða eftir þessu í sumar

Auglýsing
Ásta Eir í leik með Blikum.

Ásta Eir í leik með Blikum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ásta Eir Árnadóttir var maður leiksins og lagði upp þrjú mörk þegar Breiðablik vann 5-2 sigur á Keflavík í Pepsi Max-deild kvenna í dag.

<i>„Sú var gjörsamlega geggjuð í hægri bakverðinum! Hún fór upp og niður hægri vænginn allan leikinn og lagði upp 3 mörk! Hún virðist vera finna sitt besta form aftur eftir smá meiðsli!"</i> skrifaði Orri Rafn Sigurðarson í <a href="https://fotbolti.net/game.php?action=view_article&id=3816&completed=1" target="_blank">skýrslu sinni frá Kópavogsvelli</a>.
Orri ræddi við Ástu Eir eftir leikinn.

„Mér líður mjög vel. Það er alltaf gaman að vinna og gaman að ná loksins nokkrum stoðsendingum. Maður er búinn að bíða eftir þessu í sumar. Þetta var geggjaður sigur og við erum mjög sáttar," sagði Ásta.

Blikar lentu undir snemma leiks en þær voru fljótar að svara því og leiddu 3-1 í hálfleik.

„Við vorum ekki alveg vaknaðar í byrjun leiks. Um leið og við keyrðum á þær og gerðum það sem við erum góðar í, þá kom þetta."

Viðtalið má sjá hér að ofan, en þar ræðir Ásta einnig um Meistaradeildarævintýri sem er framundan í ágúst hjá Blikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.