Fotbolti.net
27.07.19 - 20:45
Daníel Smári Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Páll Viðar: Kannski munurinn á efsta liðinu og neðsta liðinu

Auglýsing
Páll Viðar mátti sætta sig við tap í dag.

Páll Viðar mátti sætta sig við tap í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

<i>„Svekktur að tapa, komumst yfir í seinni hálfleik þannig að það er alltaf slæmt að missa þetta svona frá okkur, en heilt yfir var ég mjög ánægður með Magnaliðið í dag. Það var allt annar bragur á þeim núna, heldur en í síðasta leik,''</i> sagði Páll Viðar Árnason, þjálfari Magna eftir 1-3 tap gegn Fjölni í Inkasso deild karla.
Fram að jöfnunarmarki Fjölnis áttu Magni í fullu tré við toppliðið en eftir að Jón Gísli Ström jafnaði var aldrei spurning hvoru megin stigin þrjú myndu falla.

„Skipulagið var í góðu lagi í dag, en þetta er kannski munurinn á efsta liðinu og neðsta liðinu. Eflaust ekki ósanngjörn úrslit, en það hefði kannski ekki miklu mátt muna að við myndum ná einhverju útúr þessum leik, en þeir eru með hörkulið og á fljúgandi siglingu uppí Pepsi.''

Ólafur Aron Pétursson spilaði sinn fyrsta leik í sumar með Magna, en hann kemur á láni frá KA annað árið í röð. Einnig léku Louis Wardle og Jordan Blinco í fyrsta skipti með liðinu, aðspurður um frammistöðu þeirra sagði Páll: „Þeir stóðu sig bara fínt. Örugglega erfitt að koma beint inní liðið eftir tvær æfingar, það var annaðhvort að hrökkva eða stökkva og ég ber að sjálfsögðu ábyrgð á því. En mér fannst þeir standa sig mjög vel og setja Magnaliðið á öðruvísi stað heldur en hefur verið.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.