Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 27. júlí 2020 22:28
Sverrir Örn Einarsson
Gústi Gylfa: Með ólíkindum þessi leikur
Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu
Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er dálítið með ólikindum þessi leikur. Að fá þessa frábæru frammistöðu í liðið hjá okkur á gríðarlega erfiðum útivelli á móti FH sem eru með frábærlega spilandi lið og fá ekkert út úr því. Það er svo svekkjandi loksins þegar þú hittir á daginn þinn og fá ekkert út úr því.“
Sagði auðsjáanlega svekktur þjálfari Gróttu Ágúst Gylfason um leik sinna manna eftir 2-1 tap gegn FH fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 Grótta

FH komst yfir snemma leiks en Gróttu tókst að halda FHingum vel í skefjum og uppskera jöfnunarmark eftir rúmlega klukkutíma leik. Adam var þó ekki lengi í paradís því aðeins um mínútu síðar hafði Steven Lennon komið FH yfir á ný.

„Já við fengum þetta mark. Reyndar af ódýrari gerðinni en mínútu síðar er FH komið í 2-1. Smá mistök hjá okkar mönnum og við fáum þetta í andlitið en eftir það þá var eiginlega bara sótt á annað markið og við fengum einhver færi. En eins og ég segi frábær frammistaða, frábærir áhorfendur og að fá ekkert út úr þessu það svíður.“

Gústi getur þó tekið jákvæða hluti út úr leiknum en eftir að hafa legið í vörn nánast allan leikinn gegn Víkingum í síðustu umferð bauð Grótta á köflum upp á snarpan og hraðan sóknarleik.

„Já við vorum flottir í dag og ég tek bara út úr þessu góða frammistöðu. Svekkjand að fá ekki neitt út úr þessum leik en það er svona. Svona er fótboltinn og við erum bara í þessu. Við þurfum að fá stig það er það sem við erum að leita eftir.“

Sagði Ágúst Gylfason en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner