Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. júlí 2022 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Albert skoraði í sigri á Lazio - Gengur ekkert hjá Kristiansund
Mynd: EPA

Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem mætti Lazio í æfingaleik í dag.


Genoa lék sinn síðasta æfingaleik en fyrsti leikur liðsins á tímabilinu er í bikarnum Benevento 8. ágúst en svo byrja átökin á Serie B þann 14. ágúst gegn Venezia.

Genoa vann í dag 4-1 en Massimo Coda skoraði þrennu áður en Albert rak síðasta naglann í kistu Lazio með marki úr vítaspyrnu.

Markið hans Alberts

Það gengur ekkert hjá Brynjólfi Willumsyni og félögum í Kristiansund í efstu deildinni í Noregi. Liðið er á botninum með tvö stig eftir 14 leiki. Brynjólfur lék rúman klukkutíma í 2-0 tapi liðsins í dag gegn Sandefjord.

Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Adana sem mætti Napoli í æfingaleik. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Mario Balotelli skoraði annað mark Adana.


Athugasemdir
banner
banner