Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. júlí 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Dembele og Kean sáu um mörkin - Benzema og Hazard skoruðu
Moise Kean skoraði tvö fyrir Juventus
Moise Kean skoraði tvö fyrir Juventus
Mynd: Getty Images
Dembele gerði einnig tvö mörk fyrir Börsunga
Dembele gerði einnig tvö mörk fyrir Börsunga
Mynd: Getty Images
Barcelona og Juventus gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í vináttuleik á Cotton-Bowl leikvanginum í Dallas í Bandaríkjunum í nótt en það voru þeir Ousmane Dembele og Moise Kean sem sáu um mörkin.

Dembele kom Börsungum yfir á 34. mínútu eftir sendingu frá Sergino Dest áður en ítalski framherjinn Kean jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Það tók Dembele aðeins tæpa mínútu að svara með öðru marki sínu áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Kean jafnaði metin fyrir Juventus í upphafi síðari hálfleiks eftir sendingu frá Manuel Locatelli og þar við sat. Robert Lewandowski var í byrjunarliði Barcelona en tókst ekki að komast á blað.

Frenkie de Jong, sem hefur verið orðaður við Manchester United, kom inná í hálfleik og spilaði í miðverði, eitthvað sem hann hefur verið að gera reglulega á undirbúningstímabilinu.

Real Madrid gerði 2-2 jafntefli við Club America. Karim Benzema skoraði fyrra mark Madrídinga eftir sendingu frá Marco Asensio. Eden Hazard kom inná í hálfleik og kom Real Madrid yfir úr víti áður en mexíkóska liðið jafnaði metin. Real er án sigurs í fyrstu tveimur leikjunum á undirbúningstímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner