Fotbolti.net
27.07.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"

Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
Canon

Mynd: Dortmund

Bjarki Hrafn Garðarsson var fyrr í þessum mánuði kynntur sem nýr leikmaður þýska stórliðsins Dortmund. Bjarki er framherji sem fæddur er árið 2010 og kemur til Dortmund frá uppeldisfélaginu Stjörnunni.

Eftir að hann var kynntur hjá Dortmund var honum líkt við annan hávaxinn og örvfættan framherja frá Norðurlöndunum. Norðmaðurinn Erling Haaland varð að stóru nafni í heimsfótboltanum þegar hann raðaði inn mörkum hjá Dortmund á árunum 2020-22 og var í kjölfarið seldur til Manchester City. Haaland er af flestum talinn einn allra besti framherji heimsins í dag, ef ekki sá besti.

Fótbolti.net ræddi við Bjarka um helgina og var hann spurður út í Haaland.
Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)
TENGT EFNI

Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)

Það er strax búið að líkja þér við Haaland, að þú gætir orðið nýi Haaland. Hvað finnst þér um það?

„Það eru náttúrulega risa stór orð að vera líkt við gæja eins og Haaland, en það truflar mig ekki. Ég vil fara mína eigin leið og spila eins og ég geri. Ég fíla Haaland mjög mikið, reyni að fylgjast með honum þegar hann spilar og sjá hvernig hann hreyfir sig í boxinu. Ég og Haaland erum báðir örvfættir, hraðir og jafn stórir en mér finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann," segir Bjarki.

Hann er í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net sem birt verður í heild sinni á morgun.





Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
Canon

Mynd: EPA

Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.