Fotbolti.net
27.08.20 - 23:05
Birna Rún Erlendsdóttir

Sesselja Líf: Bara stolt

Auglýsing
Sesselja Líf Valgeirsdóttir, fyrirliði Aftureldingar

Sesselja Líf Valgeirsdóttir, fyrirliði Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
„Bara stolt, bara geggjuð frammistaða og við erum bara búnar að sýna það í seinustu leikjum að við erum með geggjaða liðsheild og bara flottan karakter.“ sagði Sesselja Líf Valgeirsdóttir fyrirliði Aftureldingar eftir 3-1 sigur á nýliðum Gróttu í Lengjudeild kvenna í kvöld.
„Við lögðum bara upp að spila, sundurspila þær og pressa þær alveg í botn og við bara gerðum það og geggjað að það virkaði.“



„Við ætluðum bara virkilega að skemma þeirra leik og okkur tókst það bara rosa vel.“




Afturelding spilaði virkilega vel í kvöld og skoruðu þrjú mörk. Samheldnin skein í gegn hjá liðinu og segir Sesselja að æfingarnar hjá liðinu hafa verið frábærar upp á síðkastið.



„Já við erum bara búnar að vera bara geggjaðar á seinustu æfingum, viljum bara klára færin okkar betur og það sýndi sig alveg í leiknum í dag. Við vorum allar mættar inn í teiginn til að klára og það vildi hver og einn maður reyna skora, þannig þetta var bara engin tilviljun að við skildum skora loksins.“



Afturelding tekur á móti Völsung í næstu umferð Lengjudeildarinnar þann 6.september.



Viðtalið í heild sinni má nálgast hér í spilaranum að ofan. 



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.