Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   lau 27. ágúst 2022 19:38
Mist Rúnarsdóttir
Ásdís Karen eftir mjólkurbaðið: Ekkert rosalega góð lykt og maður er klístraður
Ásdís Karen fagnar sigurmarkinu ásamt Önnu Rakel Pétursdóttur
Ásdís Karen fagnar sigurmarkinu ásamt Önnu Rakel Pétursdóttur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Tilfinningin er ólýsanleg. Þetta er geggjað og þess vegna er maður í þessu. Líka með alla þessa stuðningsmenn,“ sagði kampakát Ásdís Karen Halldórsdóttir eftir að hún varð bikarmeistari með Val eftir 2-1 sigur á Breiðablik.

„Mér fannst þetta geggjaður liðssigur. Við komum til baka og sýnum hvað við erum gott lið og stöndum saman,“ sagði Ásdís Karen en Valskonur lentu marki undir í leiknum.

„Auðvitað er það ekkert sérstakt að labba inn í hálfleik marki undir en þegar við fórum inn í klefa vissum við að við værum að fara að vinna þetta. Það er bara þannig.“

Ásdís Karen og Valskonur eru búnar að eiga frábært sumar, eru í góðri stöðu á toppi Bestu-deildarinnar og eru komnar áfram í næstu umferð Meistaradeildarinnar.

„Nú eru bara fjórir úrslitaleikir eftir í deildinni og við stefnum á að vinna þá alla og klára þetta. Svo er bara Evrópukeppnin líka ótrúlega spennandi og við stefnum líka á að fara áfram í riðlakeppnina. Það eru ótrúlega spennandi tímar framundan.“

Valskonur fögnuðu rækilega þegar bikarinn fór á loft og skvettu mjólk yfir hvora aðra. Ásdísi Karen fannst það ekkert sérstaklega skemmtilegt en var auðvitað til í að láta sig hafa það í tilefni titilsins.

„Þetta er ekkert sérstakt. Það er ekkert rosalega góð lykt af þessu og maður er klístraður. En þetta er allt í lagi.“ sagði nýkrýndi bikarmeistarinn að lokum.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Ásdísi í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner