Fotbolti.net
03.07.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Áki Sölva spáir í 12. umferð Lengjudeildarinnar

Áki í leik með Dalvík/Reyni.

Áki í leik með Dalvík/Reyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Í kvöld fer tólfta umferð Lengjudeildarinnar af stað með fjórum áhugaverðum leikjum. Umferðin klárast svo með tveimur leikjum á morgun.

Alexander Rafn Pálmason var með tvo rétta þegar hann spáði í síðustu umferð. Hvað gerir Áki Sölvason, leikmaður Dalvíkur/Reynis?
Ægir 1 - 4 Fylkir (19:15 í kvöld)
Nikola Kristinn Stojanovic skorar úr aukaspyrnu snemma í leiknum og rífur sig úr að ofan 1-0 í hálfleik. Fylkir setja svo 4 í seinni, Guffi með 2, Eyþór Wöhler 1 og Máni Austmann með 1.

Njarðvík 2 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Oumar Diouck skorar tvö glæsileg mörk í fyrri hálfleik. Þróttarar taka síðan yfir seinni og ná að jafna með mörkum frá Adam Árna og Kára Kristjáns. Aron Dagur ver víti á 90+5.

ÍR 0 - 6 Afturelding (19:15 í kvöld)
Afturelding notar fyrri leik liðanna sem bensín og valta yfir þennan leik. Aron Elí skorar 2 mörk með skalla eftir horn. Elmar Kári setur fullkomna þrennu og Bjartur skorar úr langskoti.

Grótta 0 - 1 HK (19:15 í kvöld)
Það gerist ekki mikið í þessum leik fyrr en í lok leiks þegar Aron Kristófer tryggir HK sigur með alvöru neglu.

Grindavík 1 - 3 Vestri (14:00 á morgun)
Grindjánarnir Þröstur Mikael og Freyr Jóns verða ekki ánægðir með þetta en þetta verður þæginlegur sigur hjá Vestra. KA maðurinn Gunnar Jónas skorar 2 mörk með stuttu millibili áður en Damir minkar muninn. Balde klárar svo leikinn.

Leiknir R. 0 - 2 Völsungur (16:00 á morgun)
Risa sigur fyrir völlarana og það eru ungu mennirnir Elfar Árni og Steinþór Freyr sem setja mörkin.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Áki spáir Aftureldingu stórsigri.

Áki spáir Aftureldingu stórsigri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Verður Elfar Árni á skotskónum?

Verður Elfar Árni á skotskónum?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir14+1230
3HK15+1028
4Þróttur R.14+1327
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.14019
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.