Fotbolti.net
03.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo: Ég tek ekki fljótfærnislegar ákvarðanir

Ronaldo: Ég tek ekki fljótfærnislegar ákvarðanir
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo vildi ekki gefa það upp hvort hann ætli sér að hætta með portúgalska landsliðinu eftir heimsmeistaramótið eða ekki er fjölmiðlar ræddu við hann eftir 2-1 sigurinn á Króatíu í nótt.
Ronaldo leggur landsliðsskóna á hilluna eftir HM - „Njótið á meðan þið getið“
TENGT EFNI

Ronaldo leggur landsliðsskóna á hilluna eftir HM - „Njótið á meðan þið getið“

Systir Ronaldo sagði í viðtali við SportTV að hún hefði traustar heimildir fyrir því að hann muni leggja landsliðsskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið.

Ronaldo er leikja- og markahæsti landsliðsmaður í sögu fótboltans. Hann er 41 árs gamall og flestir gera sér grein fyrir því að þetta er líklega síðasti dansinn hans með Portúgal.

Hann var spurður út í framtíð sína eftir sigurinn á Króatíu, en vildi lítið gefa upp.

„Ég tek ekki fljótfærnislegar ákvarðanir. Ég tek ákvörðun eftir HM, ekki núna,“ sagði Ronaldo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.