Haaland og Vinicius vilja endurgera atriði úr gamanmyndinni White Chicks

Létt yfir stjörnunum tveimur.

Mynd: EPA

Myndin vinsæla.

Mynd: White Chicks

Létt yfir stjörnunum tveimur.

Mynd: EPA
Það er létt yfir Norðmanninum Erling Haaland og Brasilíumanninum Vinicius Jr. fyrir komandi leik Noregs og Brasilíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á sunnudag.
Í aðdraganda leiksins útbjó sniðugur netverji gervigreindarmyndband af stjörnunum tveimur og setti andlit þeirra beggja á karaktera úr bandarísku gamanmyndinni White Chicks.

Í myndskeiðinu er andlit Haalands sett yfir leyniþjónustumanninn Marcus Copeland sem er í dulargervi háskólastelpu, sem Marlon Wayans lék. Þá er andlit Vinicius sett á Latrell Spencer, sem leikinn er af Terry Crews.
Í atriðinu syngur Terry Crews hið frábæra lag „A Thousand Miles“. Erling Haaland hafði gaman af myndskeiðinu og merkti hann við Vinicius í athugasemdum við færsluna og sagði þá þurfa að endurgera atriðið.
Vinicius tók vel í grínið og svaraði einfaldlega: HAHAHAHAHAHAHAH. Þá er leikarinn Terry Crews sömuleiðis búinn að blanda sér í umræðuna og sagði við Vinicius að hann væri klár í æfingar hvenær sem er.