Fotbolti.net
03.07.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Úrvalslið umferða 1-9 í Bestu deild kvenna

Hrafnhildur Ása er búin að vera besti leikmaðurinn.

Hrafnhildur Ása er búin að vera besti leikmaðurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Uppbótartíminn hefur valið úrvalslið umferða 1-9 í Bestu deild kvenna.

Núna er hlé á deildinni þar sem U19 landsliðið er að taka þátt í lokakeppni Evrópumótsins. Því er tilvalið að staldra við og líta til baka á tímabilið til þessa.


Í úrvalsliðinu eru þrír fulltrúar Breiðabliks sem situr á toppi deildarinnar í hléinu. FH er í öðru sæti deildarinnar og á einnig þrjá fulltrúa. Svo á Stjarnan tvo leikmenn og Grindavík/Njarðvík, ÍBV, Þróttur og Víkingur eiga öll einn leikmann.

Besti leikmaðurinn: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Það höfðu margir trú á því að Ása myndi taka næsta skref eftir að hún átti stórkostlegt undirbúningstímabil og það hefur hún svo sannarlega gert. Hefur leitt sóknarlínu toppliðsins og skorað sex mörk í níu leikjum.

Efnilegust: Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
Hefur tekið við keflinu af Thelmu Karen Pálmadóttur sem fór í atvinnumennskuna. Ef Ingibjörg heldur áfram að spila eins og hún hefur verið að gera, þá er ekki langt í það að hún fari líka í atvinnumennsku.

Þjálfarinn: Ian Jeffs (Breiðablik)
Fékk mikið breytt Blikalið í hendurnar og skilar þeim á toppinn eftir níu leiki. Það hafa komið hikst hér og þar en heilt yfir hefur Breiðablik leikið vel í sumar og taflan sýnir það.
Ingibjörg Magnúsdóttir, efnilegasti leikmaðurinn.

Ingibjörg Magnúsdóttir, efnilegasti leikmaðurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adda og Ian Jeffs, þjálfarar Breiðabliks.

Adda og Ian Jeffs, þjálfarar Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn í mynd - Kristianstad, pælingar með Nik og slúður

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.