Setti tvö met í sigrinum á Króatíu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo setti tvö ný met hann í 2-1 sigri Portúgals á Króatíu í 32-liða úrslitum HM í gær.
Ronaldo setti fyrsta metið með því að vera í byrjunarliðinu gegn Króötum. Þar með varð hann elsti útispilari sem hefur komið við sögu í útsláttarkeppni HM, 41 árs og 147 daga gamall.
Hann er að leika á sínu sjötta heimsmeistaramóti og hafði aldrei áður skorað í útsláttarkeppni HM.
Það breyttist þegar Portúgal fékk vítaspyrnu eftir að Renato Veiga var tekinn niður í teignum. Ronaldo fór á punktinn, var yfirvegaður og öruggur, og skoraði sitt fyrsta mark á þessu stigi keppninnar.
Þar með varð hann einnig elsti markaskorari í sögu útsláttarkeppni HM. Hann tók metið af fyrrum liðsfélaga sínum, Pepe, sem var 39 ára og 283 daga gamall þegar hann skoraði gegn Sviss á HM 2022.
Markið var þriðja mark Ronaldo á mótinu, en Portúgal er komið áfram og mætir Spánverjum í 16-liða úrslitum.

At 41 years and 147 days, Cristiano Ronaldo is the oldest ever player to score in the knockout rounds at the FIFA World Cup.
— Squawka (@Squawka) July 3, 2026
His first KO round goal is a record-breaking one. ???? https://t.co/Da78KcB0lJ