Fotbolti.net
03.07.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Fjögurra marka sigur Árborgar - Tvö jöfnunarmörk í lokin

Árborg vann fjögurra marka sigur

Árborg vann fjögurra marka sigur

Canon

Mynd: Árborg/Instagram

Fjórir leikir fóru fram í 4. deild karla í gær.
Árborg var eina liðið sem náði í þrjú stig í gær þegar liðið vann öruggan 4-0 sigur á KFR á JÁVERK-vellinum.

Gestur Helgi Snorrason skoraði tvö mörk fyrir Árborg og þeir David Adam Dabrowski og Þorvarður Hjaltason komust einnig á blað. Árborg er í 3. sæti með 19 stig en KFR er í 7. sæti með 8 stig.

Úlfarnir náðu í stig með seint jöfnunarmarki í 2-2 jafntefli gegn Hamri á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.

Hamar fór með 2-1 forystu inn í hálfleikinn, en Kajus Pauzuolis jafnaði metin þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og bjargaði stigi fyrir heimamenn.

Það vekur athygli að þrír markahæstu leikmenn deildarinnar koma allir frá Hamri. Rodrigo Depetris er markahæstur með 11 mörk, Guido Rancez kemur næstur með 10 og Brynjólfur Þór Eyþórsson er þriðji með 9 mörk. Depetris og Brynjólfur voru báðir á skotskónum í gær.

Hamar er í 2. sæti með 22 stig en Úlfarnir eru í 4. sæti með 11 stig.

Hafnir og Álafoss gerðu 3-3 jafntefli í miklum fallbaráttuslag í Nettóhöllinni. Álafoss var nálægt því að vinna sinn annan sigur á tímabilinu eftir að hafa komist í 3-1 forystu í fyrri hálfleik, en Hafnir neituðu að gefast upp.

Rafn Edgar Sigmarsson minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik og Ottó Helgason jafnaði síðan metin þegar sjö mínútur voru eftir.

Álafoss er á botninum með 5 stig en Hafnir er í sætinu fyrir ofan með 6 stig.

ÍH og Vængir Júpiters skildu þá jöfn, 1-1, í Skessunni. Ásgeir Marinó Baldvinsson kom ÍH yfir á 16. mínútu en Arnar Ragnars Guðjohnsen jafnaði sextán mínútum síðar.

Vængir Júpiters eru í 5. sæti með 11 stig en ÍH er í 8. sæti með 7 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Úlfarnir 2 - 2 Hamar
1-0 Hermann Björn Harðarson ('12 )
1-1 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('44 )
1-2 Rodrigo Leonel Depetris ('45 )
2-2 Kajus Pauzuolis ('88 )

ÍH 1 - 1 Vængir Júpiters
1-0 Ásgeir Marinó Baldvinsson ('16 )
1-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('32 )

Hafnir 3 - 3 Álafoss
0-1 Bergsveinn Andri Halldórsson ('2 , sjálfsmark)
1-1 Bergsveinn Andri Halldórsson ('5 )
1-2 Keston George ('35 )
1-3 Safír Freyr Jónsson ('44 )
2-3 Rafn Edgar Sigmarsson ('49 )
3-3 Ottó Helgason ('83 )

Árborg 4 - 0 KFR
1-0 Gestur Helgi Snorrason ('8 )
2-0 Gestur Helgi Snorrason ('40 )
3-0 David Adam Dabrowski ('65 )
4-0 Þorvarður Hjaltason ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes11+1930
2Hamar11+2628
3Árborg10+2422
4Elliði12-219
5Úlfarnir11+815
6Vængir Júpiters10-211
7KFR11-138
8Álafoss12-168
9ÍH11-147
10Hafnir11-307
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.