27.08.26 - 14:43
Elvar Geir Magnússon
Alvarez hefur ekki æft með Atletico - Arsenal eina útgönguleiðin?

Alvarez í leik með Atletico.

Mynd: EPA

Alvarez vill helst fara til Barcelona.

Mynd: EPA

Alvarez í leik með Atletico.

Mynd: EPA
Argentínski sóknarmaðurinn Julian Alvarez hefur ekki mætt á æfingar hjá Atletico Madrid síðan honum var sagt að hann yrði ekki seldur til Barcelona.
Fjölmiðlar segja að Atletico hafi fyrr í þessari viku rætt við Alvarez og hans menn og sagt að þeir myndu ekki fara í viðræður við Bösunga.
Alvarez, sem vill fara til Barcelona, hefur misst af tveimur síðustu æfingadögum en gefið er út að hann sé veikur.

TENGT EFNI
Atletico svarar Barcelona: 0% líkur á að við seljum ykkur hann
Atletico ku vera tilbúið að selja Alvarez til Arsenal og er það möguleiki á stærstu kaupum sumargluggans. Atletico mun hafa sagt við Arsenal að félagið gæti selt hann fyrir um 128 milljónir punda.
Mikel Arteta vill kaupa Alvarez en leikmaðurinn sjálfur vill helst af öllu fara til Barcelona og það hefur flækt málin mikið. Ef leikmaðurinn gefur grænt ljós á að vera seldur til Englandsmeistarana gætu hlutirnir verið fljótir að gerast.
Barcelona hefur verið að eltast við Alvarez í allt sumar við litla hrifningu Atletico sem hefur gefið út að engar líkur séu á að hann verði seldur til Spánarmeistarana.