Fotbolti.net
27.08.26 - 17:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hákon heimsækir Englandsmeistarana - Bæði Íslendingaliðin mæta Bayern

Hákon Arnar.

Hákon Arnar.

Canon

Mynd: EPA

Tvö Íslendingalið verða í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í vetur. Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í franska liðinu Lille og Amin Cosic er að koma sér fyrir hjá norsku meisturunum í Viking eftir að hafa verið keyptur frá KR í vetur. Dregið var í dag hvaða andstæðingunum liðin mæta í vetur.

Hvert lið spilar átta leiki; fjóra heimaleiki og fjóra útileiki. Liðin mæta tveimur liðum úr öllum fjórum styrkleikaflokkunum og geta ekki mætt liði frá sínu landi. Lille var í styrkleikaflokki þrjú en Viking var í fjórða flokki. Viking er í fyrsta sinn í sögu félagsins í Meistaradeildinni en Lille var síðast veturinn 2024/25.

Lille mætir m.a. Englandsmeisturum Arsenal á útivelli og Bayern München og Roma á heimavelli.

Viking fer m.a. í heimsókn á Villa Park í Birmingham og heimsækir þar Aston Villa. Bayern Müchen kemur þá í heimsókn til Noregs.

Ekki er ljóst á þessum tímapunkti hvenær leikirnir verða spilaðir.
Drátturinn hjá ensku liðunum: Nokkuð þægilegt fyrir Liverpool
TENGT EFNI

Drátturinn hjá ensku liðunum: Nokkuð þægilegt fyrir Liverpool

Lille
Bayern München (h)
Arsenal (ú)
Real Betis (h)
Roma (ú)
Galatasaray (h)
Bodö/Glimt (ú)
Slovan Bratislava h)
Stuttgart (ú)

Viking
Bayern München (h)
Atletico Madrid (ú)
PSV (h)
Aston Villa (ú)
Feyenoord (h)
Napoli (ú)
Sabah (h)
Stuttgart (ú)
Hákon heimsækir Englandsmeistarana - Bæði Íslendingaliðin mæta Bayern
Canon

Mynd: EPA

Amin Cosic

Amin Cosic

Canon

Mynd: Viking Stavanger

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.