Fotbolti.net
27.08.26 - 12:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Zirkzee á förum frá United - Gæti spilað með Alberti

Zirkzee

Zirkzee

Canon

Mynd: EPA

Joshua Zirkzee virðist á förum frá Manchester United en hollenski framherjinn er á óskalista Fiorentina.

Fabrizio Romano segir frá því í dag að Fiorentina sé komið langt á veg í viðræðum sínum við United um Zirkzee.

Fiorentina er tilbúið að greiða fimm milljónir evra til að fá hann á láni frá Manchester.
Zirkzee hefur verið varaskeifa hjá United og er á eftir þeim Benjamin Sesko, Matheus Cunha og Bryan Mbeumo í baráttunni um fremstu stöðuna á vellinum.

Ef Zirkzee fer til Fiorentina verður hann liðsfélagi Alberts Guðmundssonar.

Zirkzee er 25 ára og kom til United frá Bologna 2024. United greiddi þá 36,5 milljónir punda fyrir kappann.

Albert

Albert

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.