Fotbolti.net
27.08.26 - 14:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

De Zerbi hæstánægður: Tekur sóknarleikinn upp á næsta stig

De Zerbi hæstánægður: Tekur sóknarleikinn upp á næsta stig
Canon

Mynd: Tottenham

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, er hæstánægður með að hafa landað Omar Marmoush sem mættur er á láni frá Manchester City. Hann verður í treyju númer 22 hjá Tottenham.

Lánið verður svo að kaupum í framhaldinu, þar sem kaupskyldu ákvæði er í lánssamningnum.
Marmoush til Tottenham (Staðfest)
TENGT EFNI

Marmoush til Tottenham (Staðfest)

„Hann býr yfir órúlegum sóknarhæfileikum en ég elska líka vilja hans til að bæta sig og til að vinna leiki."

„Hann kemur inn með hraða, greind og alvöru ógn fyrir framan andstæðinganna. Ég hef trú á því að hann taki sóknarleik upp á næsta stig,"
sagði stjórinn.

Marmoush sjálfur sagði: „Það er frábært að vera kominn. Ég er svo spenntur að byrja með liðinu og get ekki beðið eftir því að hitta stuðningsmennina."

„Tottenham Hotspur er eitt stærsta félag Englands, og jafnvel í heiminum, og verkefnið var mjög heillandi."

„Ég hef rætt við þjálfarann, ég elskaði hvað hann hafði að segja og ég er vis um að ástríða okkar fyrir leiknum mun passa vel saman,"
segir Egyptinn.
De Zerbi hæstánægður: Tekur sóknarleikinn upp á næsta stig
Canon

Mynd: Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.