Fotbolti.net
27.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Bjarki sjóðandi heitur með Dortmund

Bjarki Hrafn er kominn með átta mörk í fimm leikjum

Bjarki Hrafn er kominn með átta mörk í fimm leikjum

Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Unglingalandsliðsmaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson var enn og aftur á skotskónum með U19 ára liði Borussia Dortmund sem gerði 1-1 jafntefli við Duisburg í deildarkeppninni í gær.
Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
TENGT EFNI

Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"

Dortmund fékk hinn sextán ára gamla Bjarka frá Stjörnunni í síðasta mánuði og hefur hann raðað inn mörkum í fyrstu leikjum sínum með félaginu.

Bjarki skoraði þrennu í hvorum af fyrstu tveimur leikjunum og hefur síðan bætt við tveimur mörkum í síðustu þremur leikjum.

Hann skoraði sitt áttunda mark fyrir U19 ára lið Dortmund gegn Duisburg í gær þegar hann jafnaði metin eftir hornspyrnu undir lok leiksins, en Bjarki hafði komið inn á sem varamaður.

Dortmund er í efsta sæti H-riðils deildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki. Næst mætir liðið Essen 5. september og síðan Fortuna Düsseldorf átta dögum síðar áður en landsleikjahlé tekur við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.