15:57Hvernig verður drættinum háttað? Förum yfir þetta- Liðunum 36 er skipt upp í fjóra styrkleikaflokka.
- Byrjað verður í fyrsta styrkleikaflokki og dregið fyrir eitt lið í einu. Gervigreindin velur átta mótherja fyrir hver lið.
- Paris St-Germain, Bayern München, Real Madrid, Liverpool, Inter Milan, Manchester City, Arsenal, Barcelona og Atletico Madrid eru í fyrsta styrkleikaflokki.
- Hvert lið spilar átta deildarleiki, tvö lið úr hverjum potti - eitt heima og eitt úti.
- Lið frá sama landi geta ekki mæst í deildarkeppninni. Lið geta ekki spilað fleiri en einn leik gegn liðum frá e-u landi.
15:48Hvenær hefst drátturinn raunverulega?Athöfnin hefst 16:00 en eins og UEFA er von og vísa má búast við húllumhæi og skemmtiatriðum til að teygja lopann. Ef við miðum við síðasta ár þá mun drátturinn fara raunverulega í gang klukkan 16:30. Þangað til eiga áhorfendur von á söngatriðum, sprellimyndböndum, verðlaunaafhendingum, ræðum og jafnvel töframanni?
15:41Fimm ensk lið í keppninniArsenal, Manchester City, Liverpool, Manchester United og Aston Villa eru fulltrúar Englands. Þessi lið eiga sér marga aðdáendur hér á landi og við munum fylgjast sérstaklega vel með því hvaða mótherja þau fá.
15:35Hvar hafa meistararnir endað?Paris Saint-Germain hefur unnið Meistaradeildina í bæði skiptin sem spilað er eftir þessu fyrirkomulagi. Áhugavert er að liðið hefur í hvorugt skipti endað í topp 8 í deildinni, þeir enduðu í 15. sæti og 11. sæti í deildarkeppninni.

Mynd: EPA
15:29Stjarna sýningarinnar
Mynd: EPA
Að vanda er það Giorgio Marchetti sem heldur utan um sýninguna, veislustjóri (master of ceremonies) hjá UEFA. Marchetti er bestur í Evrópu að draga og á löngum og einstaklega farsælum ferli hans hefur dráttur aðeins einu sinni mistekist. Reyndar er dráttur dagsins að mestu tölvustýrður en Marchetti sér til þess að allt fari fullkomlega fram.
15:26Leiðin á Metropolitano
Mynd: EPA
Úrslitaleikurinn þetta tímabilið verður á Metropolitano leikvangnum í Madríd, heimavelli Atletico. Hvaða lið munu þar etja kappi þann 5. júní?
15:18Svona eru styrkleikaflokkarnirÞetta er þriðja tímabilið með nýja fyrirkomulaginu þar sem 36 lið munu keppa við átta mismunandi andstæðinga og öll liðin raðast upp á sömu töflu. Átta efstu liðin komast beint í 16-liða úrslit en liðin í 9.-24. sæti fara í umspil.
Styrkleikaflokkur 1
Paris St-Germain (Frakkland)
Bayern München (Þýskaland)
Real Madrid (Spánn)
Liverpool (England)
Inter (Ítalía)
Manchester City (England)
Arsenal (England)
Barcelona (Spánn)
Atletico Madrid (Spánn)
Styrkleikaflokkur 2
Borussia Dortmund (Þýskaland)
Roma (Ítalía)
Sporting (Portúgal)
Aston Villa (England)
Porto (Portúgal)
Manchester United (England)
Club Brugge (Belgía)
Real Betis (Spánn)
PSV Eindhoven (Holland)
Styrkleikaflokkur 3
Feyenoord (Holland)
Lille (Frakkland)
Bodö/Glimt (Noregur)
Napoli (Ítalía)
RB Leipzig (Þýskaland)
Villarreal (Spánn)
Shakhtar Donetsk (Ukraína)
Galatasaray (Tyrkland)
Fenerbahce (Tyrkland)
Styrkleikaflokkur 4
Viking (Noregur)
Slovan Bratislava (Slóvakia)
Slavia Prague (Tékkland)
VfB Stuttgart (Þýskaland)
LASK (Austurríki)
AEK Aþena (Grikkland)
Como (Ítalía)
Lens (Frakkland)
Sabah (Aserbaísjan)
15:17Tvö norsk lið eru í keppninni
Mynd: EPA
Áhugavert er að tvö norsk lið eru í Meistaradeildinni þetta tímabilið; Bodö/Glimt og Viking. Þetta er í fyrsta sinn í 27 ár sem tvö norsk lið eru í keppninni.
15:14Góðan og gleðilegan daginn!Í dag kemur í ljós hvaða lið mætast í deildarkeppni Meistaradeildarinnar en drátturinn fer fram í Mónakó klukkan 16:00. Það er spenna í lofti og við fylgjumst með í beinni textalýsingu.
Hér getur þú horft á dráttinn í beinni