Fotbolti.net
27.08.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Welbeck opnaði markareikninginn í fyrsta leiknum

Mörkin úr leikjum kvöldsins

Danny Welbeck er kominn á blað hjá Chelsea

Danny Welbeck er kominn á blað hjá Chelsea

Canon

Mynd: Chelsea

Danny Welbeck var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Chelsea en hann opnaði markareikninginn í sínum fyrsta leik fyrir félagið í kvöld.

Welbeck sat allan tímann á varamannabekknum gegn Fulham á mánudag en fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Luton í deildabikarnum í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik þurfti hann aðeins fimm mínútur til að koma Chelsea yfir. Malo Gusto átti þá frábæra fyrirgjöf frá hægri, beint á kollinn á Welbeck sem stangaði boltann í vinstra hornið. Laglegt mark hjá Englendingnum en fyrirgjöfin frá Gusto var ekki síðri.
Enski deildabikarinn: Chelsea gerði nóg gegn Luton - Mætir Leeds
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Chelsea gerði nóg gegn Luton - Mætir Leeds

Chelsea 2 - 0 Luton
1-0 Danny Welbeck ('50 )
2-0 Hakeem Odoffin ('79 , sjálfsmark)



Fulham 3 - 0 Wimbledon
1-0 Emile Smith-Rowe ('37 )
2-0 Rodrigo Muniz ('42 )
3-0 Gonzalo Manuel Garcia ('90 )

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.