Fotbolti.net
27.08.26 - 19:43
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Welbeck opna markareikninginn í fyrsta leiknum

Danny Welbeck er kominn á blað hjá Chelsea

Danny Welbeck er kominn á blað hjá Chelsea

Canon

Mynd: Chelsea

Danny Welbeck var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Chelsea en hann opnaði markareikninginn í sínum fyrsta leik fyrir félagið í kvöld.
Welbeck sat allan tímann á varamannabekknum gegn Fulham á mánudag en fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Luton í deildabikarnum í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik þurfti hann aðeins fimm mínútur til að koma Chelsea yfir. Malo Gusto átti þá frábæra fyrirgjöf frá hægri, beint á kollinn á Welbeck sem stangaði boltann í vinstra hornið.

Laglegt mark hjá Englendingnum en fyrirgjöfin frá Gusto var ekki síðri.

Sjáðu markið hjá Welbeck
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.