Alexander Már: Reyndi að ná pabba í síðasta leiknum
Auglýsing

Alexander Már raðaði inn mörkum fyrir KF. Hér er hann með viðurkenningu sína í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Alexander Már Þorláksson átti frábært tímabil fyrir KF í 2. deildinni í sumar og endaði tímabilið sem langmarkahæsti leikmaður deildarinnar.
Alexander Már, sem er sonur þjálfarans Þorláks Árnasonar, fetaði í fótspor föður síns með því að taka gullskóinn og var hann auk þess valinn efnilegasti leikmaður 2. deildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar.

„Þetta var mjög gaman og hann spilaði þarna fyrir einhverjum 20 árum. Þetta var mjög fínt, ég náði honum ekki en það var stutt í það. Ég var að reyna að ná honum í síðasta leiknum, ég held að hann hafi náð 20,\" sagði Alexander Már á lokahófi Fótbolta.net, þar sem hann var valinn efnilegastur.
Tómas Meyer og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Alexander, sem fór á láni frá Fram til KF.
„Ég fer í KF á síðasta degi gluggans á láni frá Fram og var þar allt sumarið og gekk vel. Þetta var mjög fínt. Ég veit ekki hvað ég ætla að gera á næsta ári, það kemur í ljós.\"
„Þið spáðuð okkur neðsta sæti, en við erum með gott lið og töpuðum ekki neinum leik með meira en einu marki. Þetta var svolítið stöngin út fyrri hluta tímabilsins en svo komum við til, en það var of seint.\"