Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. september 2020 18:22
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Einar Karl byrjar hjá Val - Höskuldur kemur inn aftur
Einar Karl skoraði í síðustu viðureign þessara liða.
Einar Karl skoraði í síðustu viðureign þessara liða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn Höskuldur kemur inn í Blikaliðið.
Fyrirliðinn Höskuldur kemur inn í Blikaliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 hefst stórleikur Vals og Breiðabliks á Origo-vellinum í Pepsi Max-deild karla.

Valsmenn hafa verið á mjög góðu skriði undanfarið og hafa unnið 10 síðustu deildarleiki sína og eru með 11 stiga forskot á toppi deildarinnar. Blikar sitja í þriðja sæti deildarinnar og enduðu þriggja leikja taphrinu með 2-1 sigri gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Byrjunarliðin eru nú klár.

Valur gerir eina breytingu á liði sínu frá 4-1 sigrinum gegn FH í síðustu umferð. Lasse Petry tekur út leikbann í dag og kemur Einar Karl Ingvarsson inn í hans stað.

Blikar gera tvær breytingar á liði sínu frá 2-1 sigrinum gegn Stjörnunni síðasta fimmtudag. Elfar Freyr Helgason er í banni og þá er Andri Rafn Yeoman meiddur. Inn fyrir þá koma þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Viktor Örn Margeirsson. Liðin má sjá hér fyrir neðan.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu á leiknum

Byrjunarlið Vals:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
13. Rasmus Christiansen
14. Aron Bjarnason
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
24. Valgeir Lunddal Friðriksson

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu á leiknum
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner