Nökkvi Þeyr Þórisson opnaði markareikning sinn með belgíska félaginu Beerschot um síðustu helgi.
Sjá einnig:
Sjáðu fyrsta markið sem Nökkvi gerði í Belgíu
Sjá einnig:
Sjáðu fyrsta markið sem Nökkvi gerði í Belgíu
Dalvíkingurinn gekk í raðir Beerschot frá KA í síðasta mánuði eftir að hafa skorað 17 mörk í Bestu deildinni í sumar. Hann er enn markahæsti leikmaður deildarinnar.
Hann hefur verið hægt og rólega að koma sér inn í lið Beerschot og um helgina skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir félagið.
Markið gerði hann af miklu harðfylgi, hann kom sér fram fyrir varnarmann og potaði boltanum yfir línuna. Þetta var þriðja mark liðsins og kom það þegar um korter var eftir af leiknum. Beerschot skoraði eitt til viðbótar og vann leikinn 4-0.
Eftir leikinn stóð félagið fyrir kosningu á manni leiksins og þar fékk Nökkvi yfirburðakosningu. Hann hlaut tæplega 60 prósent atkvæða og ljóst að hann er strax að vinna stuðningsmennina á sitt band.
Your man of the match. 🇮🇸#WeAre13 #YeloDrive #ErreaSport pic.twitter.com/fzU5WZ0ZkC
— K. Beerschot V.A. (@kbeerschotva) September 27, 2022
Athugasemdir