Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. september 2022 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu fyrsta markið sem Nökkvi gerði í Belgíu
Nökkvi Þeyr Þórisson.
Nökkvi Þeyr Þórisson.
Mynd: Beerschot
Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson gerði sitt fyrsta mark fyrir belgíska félagið Beershot í gær.

Dalvíkingurinn gekk í raðir Beerschot frá KA í síðasta mánuði eftir að hafa skorað 17 mörk í Bestu deildinni í sumar. Hann er enn markahæsti leikmaður deildarinnar.

Sjá einnig:
Arnar og Jói Kalli, eruð þið ekki örugglega að horfa?

Hann hefur verið hægt og rólega að koma sér inn í lið Beerschot og í gær skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir félagið.

Markið gerði hann af miklu harðfylgi, hann kom sér fram fyrir varnarmann og potaði boltanum yfir línuna. Þetta var þriðja mark liðsins og kom það þegar um korter var eftir af leiknum.Beerschot skoraði eitt til viðbótar og vann leikinn 4-0.

Beershot er komið áfram í bikarnum en hér fyrir neðan má sjá mörkin sem voru skoruð í leiknum - þar á meðal markið sem Nökkvi gerði.


Athugasemdir
banner
banner
banner