27.09.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guðni mjög ósáttur með fyrirkomulagið - „Það er fáránlegt"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði gríðarlega mikilvægum stigum í titilbaráttunni í Bestu deild kvenna í dag þegar liðið tapaði gegn Grindavík/Njarðvík.
FH er þremur stigum á eftir Breiðabliki þegar þrjár umferðir eru eftir en Breiðablik vann ÍBV í gær. FH og Breiðablik spiluðu bæði í Evrópubikarnum á miðvikudaginn. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, er ósáttur með fyrirkomulagið.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 3 - 2 FH
„Mér finnst bara fyrirkomulagið á þessu fáranlegt. Það er bara mín skoðun. Ég skil ekki að leikir séu ekki á sama tíma. Það er fáranlegt," sagði Guðni í viðtali við Sýn Sport eftir leikinn í kvöld.
„Það breytir því þó ekki hvernig þessi leikur fer en mér finnst þetta fyrirkomulag að það sé ekki leikið á sama tíma vera mjög sérstakt og ekki bara núna heldur eins bara lokaleik fyrir skiptingu þá er ekki leikið á sama tíma heldur og ég skil ekki ástæðuna."

Heimild: Vísir.is
Besta kvenna - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 22 | +31 | 49 |
| 2 | FH | 22 | +25 | 43 |
| 3 | ÍBV | 22 | -9 | 30 |
| 4 | Þróttur R. | 22 | +3 | 29 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 22 | -9 | 29 |
| 6 | Stjarnan | 22 | -2 | 27 |