Fotbolti.net
27.09.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heimir: Eftir þetta verða öll vandamál kjúklingaskítur

Heimir: Eftir þetta verða öll vandamál kjúklingaskítur
Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, vonast til að öll vandamál verði kjúklingaskítur eftir mikla dramatík í kringum leik liðsins gegn Ísrael í kvöld.

Írland vann leikinn 3-0 en í aðdraganda leiksins var mikil dramatík. Ísraelar voru mjög ósáttir við Heimi eftir að hafa notað orðið þjóðarmorð. Þá ákvað markvörðurinn Gavin Bazunu ekki að taka þátt í leiknum.
Þjóðadeildin: Öruggur sigur hjá Írum - Þjóðverjar töpuðu
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Öruggur sigur hjá Írum - Þjóðverjar töpuðu

Heimir var í viðtali eftir leikinn. Hann var spurður að því hvort frammistaða liðsins hafi komið honum á óvart.

„Ég átti ekki von á að sjá svona mikla orku í 90 mínútur. Miðað við allt saman, tilfinningar, lélegan undirbúning og allt það, að hafa þessa orku svona lengi vakti hrifningu mína. Karakterinn var til staðar, þú finnur leiðtogana á erfiðum tímum," sagði Heimir.

„Vonandi mun þetta styrkja samböndin milli leikmanna og stuðningsmanna. Ég veit að það er erfitt að gera öllum til geðs í þessum aðstæðum. Leikmennirnir sýndu á vellinum hversu mikið þeir vildu standa fyrir Írland. Ég vona að fólki átti sig á því að þeir vilji vera stoltir Írar."

„Við höfum klárlega lært af þessu. Engin gat séð þennan sirkus fyrir sér. Við munum klárlega taka fleiri réttar ákvarðanir sem samtök, þjálfarateymi og leikmenn, pössum okkur meira hvað við segjum. Vonandi geta fjölmiðlar hjálpað okkur að gera hluti betur í framtíðinni. Vonandi verður þetta stórt skref að undirbúa liðið fyrir EM. Eftir þetta verða öll vandamál kjúklingaskítur miðað við þetta," sagði Heimir að lokum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.