Fotbolti.net
27.09.26 - 20:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

VAR bjargaði Nyland frá öðrum hörmulegum mistökum

VAR bjargaði Nyland frá öðrum hörmulegum mistökum
Canon

Mynd: EPA

Portúgal er að vinna Noreg 2-1 í Þjóðadeildinni en Orjan Nyland, markvörður Noregs, vill gleyma þessum leik sem fyrst. Joao Felix kom Portúgal yfir en Erling Haaland jafnaði metin. Hann hefur skorað 65 mörk í 57 landsleikjum.
Sjáðu mörkin: Hrikaleg frammistaða Nyland í 3-2 sigri
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Hrikaleg frammistaða Nyland í 3-2 sigri

Nyland gerðist síðan sekur um hræðileg mistök. Hann sendi boltann beint á Goncalo Ramos sem þakkaði fyrir sig og vippaði yfir markvörðinn og boltinn endaði í netinu.

Stuttu síðar gerðist Nyland aftur sekur um hræðileg mistök. Hann ætlaði að hreinsa frá en hitti ekki boltann og Ramos var á undan honum og skoraði.

Nyland var hins vegar heppinn þar sem Pedro Neto var í rangstöðu í aðdragandanum og markið fékk ekki að standa.

Nyland átti ekki góðan leik gegn Danmörku á dögunum. Hann stóð grafkyrr þegar Mikkel Damsgaard skoraði úr aukaspyrnu og varði lausan bolta út í teiginn og Rasmus Höjlund nýtti sér það og skoraði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.