Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur skrifað undir tveggja ára samning við fjóra af ungum og uppöldum leikmönnum Grindavíkur.
Þetta eru þeir Dagur Ingi Hammer Gunnarsson, Óliver Berg Sigurðsson, Símon Logi Thasaphong og Viktor Guðberg Hauksson.
Viktor er tvítugur varnarmaður sem hefur leikið nokkra leiki í sumar, bæði í miðverði og bakverði.
Dagur Ingi er tvítugur kant- og miðjumaður sem hefur spilað fyrir meistaraflokk Grindavíkur síðustu þrjú tímabil. Hann glímdi við meiðsli framan af tímabili.
Óliver Berg er 19 ára gamall og getur leikið bæði á vængnum og í bakverði. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í sumar auk þess að leika með 2. flokki félagsins.
Símon Logi er 19 ára kraftmikill framherji. Símon er nýlega farinn af stað á nýjan leik eftir erfið meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni að mestu í sumar.
„Knattspyrnudeild Grindavíkur er afar stolt af því að semja við uppalda leikmenn sem hafa farið í gegnum uppeldisstefnu félagsins. Sjaldan hafa jafnmargir uppaldir leikmenn leikið með félaginu og í sumar og gefur það góð fyrirheit fyrir framtíðina," segir á heimasíðu Grindavíkur.
Grindavík er í fjórða sæti Lengjudeildarinnar en það á eftir að leika tvær umferðir í deildinni.

Grindavík hefur gert 2ja ára samning við fjóra af uppöldu leikmönnum félagsins.
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) October 27, 2020
Dagur Ingi, Óliver Berg, Símon Logi og Viktor Guðberg hafa allir leikið fyrir félagið í sumar.
Nánar 👉https://t.co/pa7e20DxcL
Áfram Grindavík!#umfg #grindavik
💛💙 pic.twitter.com/6VbL5gul39
Athugasemdir