Róbert Quental Árnason, sóknarmaður Leiknis R. hélt í gær til Svíþjóðar þar sem hann verður á reynslu hjá Norrköping í eina viku.
Róbert, sem er fæddur 2005, mun spila leiki með unglingaliði Norrköping og æfa með aðalliði félagsins.
Á þessu ári kom Róbert við sögu hjá meistaraflokki Leiknis á undirbúningstímabilinu auk þess sem hann var í leikmannahópnum í leikjum í Lengjudeildinni í sumar.
Eins og fram kom í morgun er Jóhannes Kristinn Bjarnason, 15 ára leikmaður KR, einnig á reynslu hjá Norrköping í augnablikinu.
Athugasemdir