Arsenal tapaði öðrum leik sínum á tímabilinu í kvöld þegar liðið mætti PSV í Evrópudeildinni. Leiknum lauk með 2-0 sigri hollenska liðsins.
„Betra liðið vann, svo einfalt er það. Þeir áttu þetta skilið, þeir gerðu einföldu hlutina mun betur," sagði Arteta eftir leikinn í kvöld.
„Það leit aldrei út fyrir að við vorum að fara vinna þennan leik. Við erum búnir að vera góðir í síðustu tíu leikjum, þeir eiga hrós skilið, það bjóst enginn við því að þeir myndu spila svona vel."
Liðið ætlar sér að komast aftur á sigurbraut um helgina þegar Arsenal fær Nottingham Forest í heimsókn.
„Ég get ekki breytt neinu með því að tala við pressuna við verðum að gera það á sunnudaginn fyrir framan stuðningsmennina okkar."
Athugasemdir