27.10.26 - 13:00
Fótbolti.net
Best 2026 - Alltaf að sýna nýjar hliðar á sér
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Agla María er leikmaður ársins 2026.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María átti stórkostlegt tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar urðu Íslandsmeistarar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María er leikmaður ársins 2026.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Uppbótartímanum var opinberað val á þeim bestu í Bestu deild kvenna 2026. Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, er leikmaður ársins.
Fyrirliði Blikaliðsins átti stórkostlegt tímabil og endaði sem stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Hún gerði gríðarlega mikið fyrir Blikaliðið sem kannski fólk tók ekki endilega eftir og átti til að mynda langflestar lykilsendingar í deildinni, 37 talsins.
Fyrirliði Blikaliðsins átti stórkostlegt tímabil og endaði sem stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Hún gerði gríðarlega mikið fyrir Blikaliðið sem kannski fólk tók ekki endilega eftir og átti til að mynda langflestar lykilsendingar í deildinni, 37 talsins.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2026
„Hún kemur að ótrúlega mörgum mörkum, næstflestum mörkum á eftir Hrafnhildi Ásu sem gerði líka sterkt tilkall í að vera leikmaður ársins," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Uppbótartímanum. „En hún gerir svo ótrúlega margt fleira fyrir þetta Breiðablikslið."
„Á tímapunkti hafði maður áhyggjur af því að hún væri að reyna alltof mikið. Mér fannst hún byrja þannig að hún þyrfti alltaf að eiga úrslitasendinguna, koma djúpt og eitthvað. Um leið og það fór aðeins af henni og hún fór í meira flæði með liðinu... það fór lítið fyrir henni en hún var alltaf allt í öllu," sagði Arnar Páll Garðarsson.
„Hún kemur að 21 marki. En hún er alltaf að sýna nýjar hliðar á sér. Hún var meiri leiðtogi í ár en hún hefur þurft að vera. Varnarlega var allt annað að sjá hana að mínu mati," sagði Arnar jafnframt.
„Hún var í liði umferðarinnar oftar en nokkur annar leikmaður og var stabílust yfir tímabilið," sagði Guðmundur.
„Hún er búin að vera með þetta hlutverk að vera best í þessu liði í svo mörg ár og er enn að verða betri," sagði Snæbjört Pálsdóttir.
„Hún á ekkert að vera að spila í þessari deild, er alltof góð fyrir þessa deild," sagði Guðmundur en með réttu ætti Agla María að vera að spila í mjög öflugri deild erlendis, en hún er heimakær og líður vel í Breiðabliki.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.

Agla María átti stórkostlegt tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar urðu Íslandsmeistarar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
