Fotbolti.net
27.10.26 - 13:15
Fótbolti.net

Efnilegust 2026 - Bætti sig ekki bara í fótbolta

Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það var hörð keppni í valinu á efnilegasta leikmanni tímabilsins í Bestu deild kvenna. Valið stóð á milli Hrafnhildar Ásu Halldórsdóttur úr Breiðabliki, Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Ingibjargar Magnúsdóttur úr FH.

Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, valdi Líf sem efnilegasta leikmann tímabilsins þetta árið.
Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2026
TENGT EFNI

Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2026


Líf, sem er fædd árið 2007, var ein af þeim ungu leikmönnum sem tóku stærra hlutverk í liði Breiðabliks í sumar og hún tók það af miklum krafti. Gríðarlega fjölhæfur leikmaður sem getur spilað út um allan völl en hún spilaði í sumar sem hægri og vinstri vængbakvörður, sem kantmaður, sem tía og líka sem sóknarmaður. Hún leysti öll þessi hlutverk vel og kom að tíu mörkum fyrir Blikaliðið sem varð Íslandsmeistari. Hún spilaði þá sinn fyrsta A-landsleik á dögunum.

„Mér fannst hún mjög sjaldan eiga vonda leiki. Það kom auðvitað fyrir að hún var ekki frábær, en það er bara eðlilegt. Ástæðan fyrir því að ég vel hana er að mér fannst hún alltaf vera að bæta sig," sagði Arnar Páll Garðarsson.

„Mér fannst hún vera að spila sinn besta fótbolta undir lok tímabilsins og hún hafði verið góð fram að því. Mér fannst hugarfarið breytast hjá henni og maður sér það inn á vellinum. Mér fannst ég sjá mun á öllu og auðvitað kemur landsliðið á fáránlega góðum tíma fyrir hana og Breiðablik. Ása tók smá dýfu og var óheppin fyrir framan markið, sama hjá Ingibjörgu. Mér fannst ég aldrei geta sagt að Líf hafi verið léleg þrjá leiki í röð. Það var alltaf orka og hún var alltaf að reyna."

„Það er gaman þegar maður sér líka ekki bara bætingu í fótbolta, heldur líka á hugarfari."

Snæbjört Pálsdóttir tók undir þetta. „Hún var ógeðslega flott. Og þetta hugarfar líka. Maður sér oft með unga leikmenn sem vilja spila sína stöðu og ekkert fara út úr henni. Henni var hent í allar stöður og gerði það að sínu," sagði hún.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.

Best 2026 - Alltaf að sýna nýjar hliðar á sér
TENGT EFNI

Best 2026 - Alltaf að sýna nýjar hliðar á sér

Líf var valin í landsliðið í fyrsta sinn á dögunum.

Líf var valin í landsliðið í fyrsta sinn á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hrafnhildur Ása og Líf gerðu báðar tilkall í að vera valdar efnilegastar.

Hrafnhildur Ása og Líf gerðu báðar tilkall í að vera valdar efnilegastar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.