Fotbolti.net
27.10.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Haaland ekki með gegn Brighton - Rulli í markinu

Erling Haaland er hvíldur.

Erling Haaland er hvíldur.

Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland er einn af fimm leikmönnum sem munu missa af leik Manchester City gegn Brighton í 16-liða úrslit Carabao-deildabikarsins á morgun þar sem þeir fá hvíld.

Haaland var með í tapinu gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en er einn af nokkrum sem hafa fengið nokkurra daga frí áður en hann snýr aftur fyrir næsta deildarleik.
Haaland, Josko Gvardiol, Elliot Anderson, Ruben Dias og Gigio Donnarumma fá hvíld. Ljóst er að hinn argentínski Geronimo Rulli verður í marki City á morgun.

City mætir Brighton aftur um helgina, þá í deildinni.

Það hefur verið mikið leikjaálag á Haaland en hann hvíldi í deildabikarleiknum gegn Norwich í síðasta mánuði og var svo ónotaður varamaður í Meistaradeildarleiknum gegn AEK Aþenu í síðustu viku, eftir að hafa fengið högg í leik gegn Ipswich.

Markvörðurinn Donnarumma hefur gert nokkur mistök að undanförnu og ekki spilað eins vel og hann er vanur.

„Þeir eru að spila svo marga leiki, svo margar mínútur að stundum er næstum ómögulegt að gera ekki mistök. Hann veit af því þegar hann gerir mistök, það þarf ekki að segja honum það. Hann viðurkennir það og það er hluti af leiknum,“ segir Enzo Maresca, stjóri City.
Líka Donnarumma.

Líka Donnarumma.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.