27.10.26 - 13:30
Fótbolti.net
Besti þjálfarinn 2026 - Ýtir meira undir hvað þetta er mikið afrek
Ian Jeffs (Breiðabliks)

Þjálfarateymi Breiðabliks með skjöldinn góða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jeffsy og Flosi Eiríksson, formaður fótboltadeildar Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á hliðarlínunni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarateymi Breiðabliks með skjöldinn góða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfari ársins í Bestu deild kvenna árið 2026 er Ian Jeffs, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks.
Það voru margir sem komu til greina; Anton Ingi í Fram, Gylfi Tryggvason í Grindavík/Njarðvík og Jón Óli í ÍBV. En að lokum var það Jeffsy sem varð fyrir valinu í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta.
Það voru margir sem komu til greina; Anton Ingi í Fram, Gylfi Tryggvason í Grindavík/Njarðvík og Jón Óli í ÍBV. En að lokum var það Jeffsy sem varð fyrir valinu í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2026
„Fyrst og fremst náði hann þessum titli og gerir það vel," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum. Þegar rætt var um Breiðablik sagði hann jafnframt: „Það sem kom mér mest á óvart var hversu nálægt þær eru stigasöfnunni hjá Breiðabliki í fyrra. Það munar bara fjórum stigum og það er talað um það lið sem eitt besta lið í sögu deildarinnar. Það ýtir meira undir hvað þetta er mikið afrek hjá Breiðabliki. Það breytist ótrúlega mikið á milli ára."
„Þetta var erfitt að því leytinu til að það eru kröfur þrátt fyrir miklar breytingar. Risa hrós á hvernig hann hefur aðlagast og náð að búa til leikstíl sem hentaði liðinu fáránlega vel."
„Adda (Baldursdóttir) er aðstoðarþjálfari hjá honum. Það væri gaman að sjá hana taka við liði sem aðalþjálfari í framtíðinni. Ég er viss um að hún gæti gert virkilega góða hluti," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og bætti við:
„Ian Jeffs er vel að þessu kominn."

TENGT EFNI
Best 2026 - Alltaf að sýna nýjar hliðar á sér

TENGT EFNI
Efnilegust 2026 - Bætti sig ekki bara í fótbolta

Jeffsy og Flosi Eiríksson, formaður fótboltadeildar Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á hliðarlínunni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
