Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 28. janúar 2020 10:55
Elvar Geir Magnússon
Solskjær: Sanchez mun fá annað tækifæri á Old Trafford
Alexis Sanchez í leik með Inter.
Alexis Sanchez í leik með Inter.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Alexis Sanchez muni snúa aftur á Old Trafford í sumar.

„Hann mun sýna að þið hafið rangt fyrir ykkur!" sagði Solskjær á fréttamannafundi í dag.

Sanchez fann sig engan veginn hjá United eftir að hann kom frá Arsenal. Hann fór á lán til Inter síðasta sumar og bjuggust flestir við því að hann hefði leikið sinn síðasta leik fyrir United.

Solskjær ætlar að gefa leikmanninum annað tækifæri eftir tímabilið.

„Alexis kemur aftur í sumar," sagði norski stjórinn.

Manchester United hefur ekki keypt neinn leikmann í janúarglugganum.

„Það er ekkert nýtt að frétta af þeim málum. Hugur minn er á leiknum gegn Manchester City," sagði Solskjær en annað kvöld er seinni undanúrslitaleikur United gegn City í Meistaradeildinni. City vann fyrri leikinn 3-1.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner