lau 28. janúar 2023 20:01
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Son og Danjuma afgreiddu Preston
Mynd: Getty Images

Preston 0 - 2 Tottenham
0-1 Son Heung-min ('50)
0-2 Son Heung-min ('69)
0-3 Arnaut Danjuma ('87)


Son Heung-min leiddi sóknarlínu Tottenham á meðan Harry Kane var hvíldur á bekknum í 32-liða úrslitum enska bikarsins.

Tottenham heimsótti Championship lið Preston North End og var staðan markalaus eftir fyrstu 45 mínúturnar.

Tottenham stjórnaði förinni allan tímann og litu mörkin dagsins ljós í síðari hálfleik. Fyrst skoraði Son Heung-min með flottu skoti utan teigs og svo tvöfaldaði hann sjálfur forystuna.

Arnaut Danjuma, sem er nýgenginn til liðs við Tottenham, kom inn af bekknum og innsiglaði sigurinn með þriðja og síðasta marki leiksins.

Preston átti nokkur góð færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner