Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 28. febrúar 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stuðningsmenn Frankfurt fundu lið til að styðja - Fjölmenntu á íshokkíleik
Klagenfurt er ekki vant því að fá þennan stuðning.
Klagenfurt er ekki vant því að fá þennan stuðning.
Mynd: ÖJA
Stuðningsmenn Eintracht Frankfurt eru í Salzburg og var ætlunin að mæta á leik liðs Frankfurt gegn Red Bull Salzburg í Evrópudeildinni í gær.

Leikurinn fór ekki fram í gær þar sem fellibylsviðvörun var í Salzburg og var leikur liðsins færður fram á daginn í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00.

Stuðningsmenn Frankfurt, sem eru alls á bilinu fimm til sex þúsund saman komnir í Salzburg, dóu ekki ráðalausir í gær heldur skelltu einhverjir þeirra sér á íshokkíleik þar sem RB Salzburg mætti Klagenfurt.

Stuðningsmenn Frankfurt studdu að sjálfsögðu Klagenfurt í leiknum enda ekki komnir til Salzburg til að styðja heimamenn. Íslendingur var meðal stuðningsmanna Frankfurt og heitir sá Örvar Jens.

Hann sendi Fótbolta.net myndir sem fylgja með fréttinni. Svo það komi fram þá leiðir Frankfurt 4-1 eftir fyrri leikinn gegn Salzburg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner