Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
Murielle: Það er fínt að við erum þær einar sem erum að setja pressu á okkur
Óskar Smári: Það er bara mikil stemning og fjör
Jóhannes Karl: Þetta er skref aftur á bak
Birta Georgs: Fengum hárblásara í hálfleik
Björgvin Karl eftir 6-0 tap: Sumir leikmenn mættu leggja sig meira fram
Nik Chamberlain eftir stórsigur: Verðum að standa undir væntingum
Tindastóll nældi í fyrsta stigið gegn Val - „Stórkostlegur árangur"
Elías Rafn: Sexí varsla frá McTominay
Albert um framtíðina: 15. júní tekur Fiorentina ákvörðun
Gulli vorkenndi markmanni Skota - „Gaf okkur blóð á tennurnar"
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Andri Lucas: Þýðir ekkert annað en að vera bara leiðinlegur til baka
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Prettyboitjokkó og Nadía Atladóttir skrá sig til leiks
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
Gylfi Tryggva: Erum ekki að pæla mikið í töflunni
Willum: Munum sjá Birmingham í úrvalsdeildinni á innan við fimm árum
Logi á leið til Tyrklands - „Ógeðslega spennandi skref“
Hörður Björgvin himinglaður - „Maður sá ekki til sólar og það var mjög dimmt yfir“
Gústi Gylfa: Þeir stjórnuðu þó ég hafi reynt að garga eitthvað bakvið tjöldin
Sigga fannst sínir menn litlir: Hef ekki svör, skil ekki frammistöðuna
   mið 28. mars 2018 21:00
Ingólfur Stefánsson
Gummi Ben: Hef trú á því að HM verði okkar mót
Icelandair
Mynd: Raggi Óla
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson sér um þættina Fyrir Ísland sem verða frumsýndir á Stöð 2 í næsta mánuði.

Guðmundur hefur fylgt íslenska landsliðinu eftir undanfarna mánuði og heimsótt ýmsa leikmenn landsliðsins við gerð þáttanna. Hann var staddur á leik Íslands og Perú í nótt.

„Við erum búin að elta strákana allt árið og heimsækja marga þeirra víðsvegar um Evrópu. Við erum að athuga hvort menn séu ekki örugglega að gera eitthvað aukalega fyrir HM."

„Við höfum einnig verið að heimsækja aðra sem hafa spilað á HM og unnið HM og höfum verið að skoða hvað við þurfum að gera til þess að verða Heimsmeistarar."


Gummi segir að það hafi verið mikið ferðalag í kringum þættina og það sé ekki búið enn. Eftir 10 daga verði haldið til Rússlands þar sem vellirnir sem íslenska liðið spilar á verði meðal annars skoðaðir.

„Við heimsækjum líka völlinn sem við munum spila á í 16 liða úrslitum því við ætlum okkur allaveganna þangað."

Hann segir að hann sé fullur bjartsýni fyrir mótið eftir að hafa eytt tíma í kringum strákana í landsliðinu.

„Það er bara þannig þegar að maður hittir þá að maður fyllist bjartsýni. Þeir eru ofboðslega bjartsýnir sjálfir og með mikið sjálfstraust sem smitar mann. Mér líður alltaf vel þegar ég er búinn að hitta þá og hef trú á því að HM verði okkar mót."

Albert Guðmundsson sonur Gumma er einn af þeim sem eru að berjast um sæti í íslenska hópnum fyrir Heimsmeistarakeppnina. Gummi segir að það sé hörð barátta um sæti í liðinu og það verði alltaf einhverjir sem verða drullufúlir eftir heima.

„Það var eins fyrir EM, svona er þetta í sportinu, það er grimmt stundum."

Þættirnir Fyrir Ísland verða frumsýndir 23. apríl næstkomandi. Alls verða þættirnir 8 en sá síðasti fer í loftið í vikunni áður en íslensku strákarnir hefja leik á HM í Rússlandi.

Viðtalið við Gumma má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner