Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
banner
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
mánudagur 22. apríl
Besta-deild kvenna
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
laugardagur 20. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 20. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
þri 28.mar 2023 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 11. sæti: Fylkir

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að nýliðar Fylkis muni enda í 11. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Fylkir endar í næst neðsta sæti ef spáin rætist en fimm af spámönnunum spá því að liðið haldi sér í deildinni.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Fylkir, 26 stig
12. HK, 17 stig

Um liðið: Fylkir stoppaði stutt í næst efstu deild. Það var aldrei spurning um að liðið komast beint aftur upp. Seinni hluta mótsins fóru þeir í gegnum mikla sigurgöngu og unnu hvern leikinn á fætur öðrum. Fylkismenn stóðu uppi sem ótvíræðir sigurvegarar Lengjudeildarinnar og eru mættir aftur í deild þeirra bestu. Liðið er mjög ungt - líkt og síðast þegar það var uppi - og spurning hvort niðurstaðan verði önnur í sumar.



Þjálfari - Rúnar Páll Sigmundsson: Hann tók við Fylki þegar þrjár umferðir voru eftir af tímabilinu 2021 er liðið féll úr Bestu deildinni. Hann ákvað að taka slaginn áfram og fór beint aftur upp með liðið. Rúnar var þjálfari Stjörnunnar á árunum 2014 - 2021. Þar náði hann mjög svo góðum árangri, varð Íslands- og bikarmeistari og náði einnig eftirtektarverðum árangri í Evrópu. Þar á undan hafði hann þjálfað Skínanda, HK og Levanger í Noregi.


Rúnar Páll Sigmundsson.

Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Ingólf Sigurðsson til að rýna í styrkleika, veikleika og margt annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Þeir sjá þó ekki að skrifa um leikvöllinn hér að neðan. Einar, sem er fyrrum aðstoðarþjálfari Víkings, fer yfir það helsta hjá Fylki.

Styrkleikar: Fylkismenn eru þéttir fyrir og vel skipulagðir varnarlega og með sterka miðju. Rúnar Páll þekkir það að byggja upp gott lið með góðan anda og einfalt og gott leikskipulag sem ætti að henta þessu unga liði. Þeir eru með marga uppalda Fylkismenn sem er styrkur.

Veikleikar: Þá vantar meira skapandi flæði framávið og framúrskarandi leikmenn í sóknina til þess að búast við einhverju meira en fallbaráttu. Það er líka spurning hvort að þeir hafi nógu og sterka leiðtoga inn á vellinum til að takast á við mótlæti. Það er lítil breidd í liðinu þannig að Fylkismenn verða að treysta á að þeirra helstu lykilmenn haldist heilir.



Spurningarnar: Emil Ásmundsson er gæðaleikmaður sem lenti í erfiðum meiðslum, mun hann ná sér á strik? Hvernig ná Fylkismenn að fylla skarð Mathias Laursen sem missir af mótinu en hann skoraði 15 mörk í fyrra?

Þrír lykilmenn: Miðvörðurinn Ásgeir Eyþórsson er með mikla reynslu og er afar mikilvægur í hjarta varnarinnar. Arnór Gauti Jónsson er spennandi miðjumaður í U21 landsliðinu og Benedikt Daríus Garðarsson er leikmaður sem er búinn að vinna sig upp stigann alla leið úr 4. deild. Hann spilaði stórt hlutverk í Lengjudeildinni í fyrra og var virkilega flottur.


Ásgeir Eyþórsson.

Leikmaður sem á að fylgjast með: Benedikt Daríus Garðarsson skoraði 14 mörk í Lengjudeildinni í fyrra og hefur líka verið að set'jann á undirbúningstímabilinu. Sprækur leikmaður sem ég hlakka til að sjá í Bestu deildinni.


Benedikt Daríus Garðarsson.

Völlurinn: Það er oft skemmtileg stemning sem myndast á Würth vellinum og er völlurinn einn sá skemmtilegasti í deildinni. Árbæingar spila á gervigrasi, með tiltölulega nýlega stúku og stuðningsmenn í hverfinu eru duglegir við að taka göngutúr á völlinn.



Komnir:
Elís Rafn Björnsson frá Stjörnunni
Emil Ásmundsson frá KR
Jón Ívan Rivine frá Gróttu
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Pétur Bjarnason frá Vestra
Valgeir Árni Svansson frá Hönefoss

Farnir:
Aron Örn Þorvarðarson í Hauka (á láni)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson í ÍR
Hallur Húni Þorsteinsson í Hauka (á láni)

Dómur Einars fyrir gluggann: 5,5 af tíu mögulegum.


Ólafur Karl Finsen er mættur í Fylki.

Líklegt byrjunarlið


Leikmannalisti:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
12. Jón Ívan Rivine (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Frosti Brynjólfsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson
9. Pétur Bjarnason
10. Benedikt Daríus Garðarsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
13. Stefán Gísli Stefánsson
15. Axel Máni Guðbjörnsson
16. Emil Ásmundsson
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
21. Valgeir Árni Svansson
22. Ómar Björn Stefánsson
23. Aron Snær Guðbjörnsson
24. Elís Rafn Björnsson
25. Þóroddur Víkingsson
26. Theódór Ingi Óskarsson
27. Arnór Breki Ásþórsson
30. Guðmundur Rafn Ingason
77. Óskar Borgþórsson
80. Ólafur Karl Finsen

Fyrstu fimm leikir Fylkis:
10. apríl, Fylkir - Keflavík
16. apríl, Víkingur R. - Fylkir
24. apríl, Fylkir - HK
29. apríl, HK - Fylkir
3. maí, Fylkir - Valur

Í besta falli og versta falli: Í besta falli níunda sæti og í versta falli tólfta sæti.

Á eftir birtist Fylkis hlaðvarp hér á síðunni. Endilega fylgist með því.

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Arnar Daði Arnarsson, Arnar Laufdal, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Tómas Þór Þórðarson.
Athugasemdir
banner
banner