Fotbolti.net
28.05.22 - 16:36
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir

Bergdís Fanney: Þetta var bara geggjað, það er alltaf erfitt að koma hérna á Skagann

Auglýsing
Bergdís Fanney Einarsdóttir

Bergdís Fanney Einarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Þetta var bara geggjað, það er alltaf erfitt að koma hérna á Skagann og að vinna svona 6-0 það er bara gott fyrir okkur að byggja aðeins upp á þetta", sagði Bergdís Fanney um 6-0 sigur KR á ÍA í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarskvenna í dag.

Eftir að hafa ekki náð í stig og tapað 5 fyrstu leikjum sumarsins hafa KR ingað nú unnið síðustu tvo leiki sína.

„Bara að skora og nýta völlinn hérna á móti Skaganum, það er bara geggjað.".

Bergdís sem er uppalin á Akranesi skoraði tvö mörk í leiknum í dag. 

„Bara ég gæti ekki gert þetta án liðsfélaganna sko en ég er náttúrulega uppalin hérna þannig að mér líður alveg vel hér og geggjað að ná tveimur mörkum á heimavelli."

Bergdís var spurð hver væri óska mótherji í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarsins en hún sagðist bara taka því sem að kæmi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.