Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. maí 2022 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pavard vill taka við af Sule
Mynd: Getty Images
Franski leikmaðurinn Benjamin Pavard hefur verið að spila hægri bakvörð hjá Bayern Munchen en hann er ekki nógu sáttur við það.

Niklas Sule hefur samþykkt að fara til Dortmund og félagsskiptin munu ganga í gegn í sumar. Pavard vill taka stöðu hans í miðverðinum.

„Ég get hjálpað í hægri bakverði en miðvörður er mín staða. Ég vil spila miðvörð því það hefur verið mín staða frá því ég spilaði í u19. Mér liður vel í þeirri stöðu," sagði Pavard.

Bayern gekk frá kaupum á Noussair Mazraoui hægri bakverði frá Ajax í vikunni en hann skrifaði undir fjögurra ára samning.


Athugasemdir
banner
banner