Ítalski miðvörðurinn Alessandro Bastoni fer ekki fet en þetta segir Giuseppe Marotta, forseti félagsins, í viðtali við DAZN.
Framtíð Bastoni hefur verið eitt helsta umræðuefni ítalska boltans síðustu mánuði.
Ítalinn var sterklega orðaður við Spánarmeistara Barcelona, en það hafa ekki verið neinar framfarir í þeim viðræðum og nú segir Marotta að Bastoni verði áfram hjá félaginu.
„Ég held að stuðninngsmennirnir geti andað léttar yfir Bastoni stöðunni. Hann bað aldrei um að fara frá félaginu og er bara mjög ánægður. Við erum ekki heldur félag sem þarf að selja leikmenn.“
„Ég er viss um að Bastoni verður áfram,“ sagði Marotta.


