Jose Mourinho, sem mun taka við Real Madrid á næstu vikum, vill að félagið selji brasilíska varnarmanninn Eder Militao í sumarglugganum.
Fabrizio Romano hefur fullyrt að Mourinho sé að taka við Real Madrid.
Það verður í annað sinn sem hann tekur við liðinu og fær hann það hlutverk að koma því aftur í fremstu röð.
El Nacional segir að Mourinho vilji hreinsa til í hópnum og er talið að hann vilji losa sig við Eder Militao sem hefur reynst liðinu mikilvægur síðustu ár.
Vandamálið með MIlitao er að hann er gjarn á að meiðast og virðist hann óheppnari en flestir. Samkvæmt TransferMarkt hefur kappinn misst af 148 leikjum vegna meiðsla, en tvisvar hefur hann slitið krossband og þá reif hann vöðva aftan í læri í síðasta mánuði sem mun halda honum frá vellinum fram í september.
Mourinho vill að félagið selji hann á meðan það er möguleiki, en Paris Saint-Germain er sagt mjög áhugasamt um að kaupa hann.
Félagið er reiðubúið að greiða 35 milljónir evra sem er 25 milljónum evra undir verðmati Madrídinga.
Militao hefur unnið ellefu titla síðan hann gekk í raðir Real Madrid frá Porto árið 2019.


