Panama verður meðal þátttökuliða á HM í sumar og hefur tilkynnt hóp sinn fyrir sumarið.
Thomas Christiansen hefur stýrt Panama frá árinu 2020 og ólíkt mörgum landsliðum á þessu stigi hefur sambandið sýnt þolinmæði. Sú ákvörðun virðist hafa skilað sér, enda hefur Panama verið nokkuð stöðugt lið síðustu ár og farið traustum skrefum í rétta átt.

Það er þó búist við því að liðið verði fallbyssufóður á mótinu í sumar enda í gríðarsterkum riðli með Englandi, Króatíu og Gana.
Það eru ekki þekkt nöfn hjá Panama en aðeins einn leikmaður í hópnum spilar í enska boltanum og það er Jose Cordoba. varnarmaður Norwich City.
Markverðir: Orlando Mosquera, Luis Mejia, Cesar Samudio.
Varnarmenn: Cesar Blackman, Jorge Gutierrez, Amir Murillo, Fidel Escobar, Andres Andrade, Edgardo Farina, Jose Cordoba, Eric Davis, Jiovany Ramos, Roderick Miller.
Miðjumenn: Anibal Godoy, Adalberto Carrasquilla, Carlos Harvey, Cristian Martinez, Jose Luis Rodriguez, Cesar Yanis, Yoel Barcenas, Alberto Quintero, Azarias Londono.
Sóknarmenn: Ismael Diaz, Cecilio Waterman, Jose Fajardo, Tomas Rodriguez.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!